

Við byggjum á fagmennsku, trausti og áreiðanleika
Við byggjum á reynslu, þekkingu og breiðum hópi fagfólks.

Hjá Fagbygg starfar öflugt og samheldið teymi með víðtæka reynslu og fjölbreytta menntun á sviði mannvirkjagerðar.
Innan fyrirtækisins sameinast ólík þekking og reynsla, allt frá tæknimenntuðu fagfólki til reynslumikils starfsfólks með sterka verklega þekkingu.
Það gerir okkur kleift að nálgast hvert verkefni af fagmennsku, yfirsýn og lausnamiðaðri hugsun.

.jpg)

Við bjóðum alhliða þjónustu við byggingarframkvæmdir og leggjum sérstaka áherslu á viðhald og endurbætur á fasteignum, sem og verkefnastjórn. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum trausta og vandaða þjónustu þar sem gæði, skipulag og góð samskipti eru í forgrunni á öllum stigum verksins.
Hjá okkur færðu samstarfsaðila sem fylgir verkefninu frá upphafi til enda. Við hlustum á þarfir og væntingar viðskiptavina okkar, metum stöðuna af fagmennsku og finnum hagkvæmar og raunhæfar lausnir sem henta hverju verkefni.
Með góðri áætlanagerð, skýrri verkstýringu og vönduðum frágangi tryggjum við að framkvæmdin gangi vel og að niðurstaðan standist væntingar.
Við trúum því að góð framkvæmd byggir ekki aðeins á tæknilegri þekkingu, heldur líka á trausti, ábyrgð og faglegum vinnubrögðum. Þess vegna leggjum við metnað í að halda viðskiptavinum vel upplýstum, vinna skipulega og skila verki sem við erum stolt af.
.jpg)

Þetta gerum við:
-
Viðhald fasteigna
-
Endurbætur á íbúðar- og atvinnuhúsnæði
-
Almennar byggingarframkvæmdir
-
Ástandsmat og ráðgjöf
-
Áætlanagerð og undirbúning verkefna
-
Verkstýringu og eftirfylgni
-
Vandaðan loka frágang
Okkar áherslur
-
Fagmennska í hverju skrefi
-
Traust og góð samskipti
-
Vönduð vinnubrögð
-
Heildarsýn á verkið
-
Lausnamiðuð nálgun